jafnrétti hvað !

Var alls ekki óánægð með útkomu kosninganna, en ég verð að lýsa yfir minni óánægju með ráðherraval sjálfstæðisflokksins, aðeins ein kona ráðherra ? Mínir mætu menn hvað er í gangi ?

Vonaðist að sjálfsögðu eftir að fleiri konur yrðu skipaðar, enda fullt af frábærum konum sem voru kosnar inn á þing í ár eins og t.d. Guðfinna sem var rektor Háskóla Reykjavíkur. Ekki móðga kjósendur ykkur, var ekki Björn með útstrikanir uppá tæp 20%  og hann er samt settur ráðherra? Vill einhver útskýra þetta fyrir mér. 

Held ég þurfi alvarlega að endurskoða hvert atkvæðið mitt fer í næstu kosningum. 

Hef reyndar pínu áhyggjur af Guðlaugi, það hefur engum heilbrigðisráðherra farnast vel undanfarin ár. Hver man ekki eftir aftöku Guðmunds Árna, eða Ingibjörgu  óvinsælu, Jóni rólega , og svo Sif, sem fékk ekkert að njóta sín . Eða á maður að segja að kluðra hlutunum fyrir sjálfri sér, það voru reyndar mjög dubios mál eins og bæklingar sem voru prentaðir kannski fyrir fé úr sjóði aldraðra, eða  óperu tónleikar á Hjúkrunarheimilum landsins. Hef sjálf ekki orðið vör við neina tónleika, en það er ekkert að marka er ekki svo menningarleg heldur. Hef átt í fullu fangi með að  framfleyta mér.

 Jæja, kannski fer að virka framboð og eftirspurn á spítalanum , og við hjúkrunarfræðingar fáum hærri laun. Enda er gríðarlegur skortur á hjúkrunarfræðingum á LSh þessa dagana. 

Jæja, nóg af röfli í bili. Er að hugsa um að fara sofa, enda lítur allt betur út í dagsbirtu. Kannski verð ég bara sátt á morgun.

kveðja í bili Laufey 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

laufeyogsteina

Höfundur

Laufey
Laufey

Frábær hjúkrunarfræðingur 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...061125_0009
  • Í vetri og sól
  • Mona Lisa í Covent Garden
  • Og svo eina náttúrumynd
  • breið bros

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband