4.11.2006 | 01:53
Frí, er það málið?'
Já, það er kannski málið að við vinnum til að hafa efni á að fara í frí, ég er þá sennilega bara létt blúsuð eftir seinustu utanlandsferð og svo það að hafa þurft að vera á Reykhólum að vinna eftir að ég kom heim ( það krafðist gífurlegs átaks að vera þar í 3 vikur ). Ætla þá að reyna planera einhverja nýja utanlandsferð eftir ekki alltof marga mánuði. (Best að gefa kost á sér í aukavaktir á öllum deildum svo peningarnir streymi í kassann.
Var búin að skrifa heilmikið um hjúkrunarþingið, og allt mögulegt annað en þurfti svo að fara sinna sjúklingi og allt datt út. Nenni ekki að skrifa alla ræðuna aftur, fræðslan kemur einhverntímann á morgun.
Er að vinna sem sagt í nótt, á morgun er svo skóli kl. 11.00 svo dagurin á morgun verður frekar strembinn. Langar að skreppa eitthvað út annað kvöld ef ég verð ekki alveg dauð eftir daginn, þarf að ath. með vinkvennahópinn hver kemst út.
En það sem ég hef afrekað á síðustu dögum og ekki afrekað er eftirfarandi:
1. Skilað fugli, ekki gekk að kenna honum neitt, var áfram jafn mannfælinn og áður, beit alla ennþá.
2. Sixpack ekki mótað á maga ennþá.
3. Eyða fullt af peningum á útsölu í Ikea .
4. Jólakærasti ekki fundinn ennþá.
Sofið rótt... (ég verð náttúrulega vakandi )
Laufey
Um bloggið
laufeyogsteina
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hey ég er lika vakandi á næturvakt hehehe
Ólafur fannberg, 4.11.2006 kl. 02:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.